Meistaramót SÍGÍ 2026
Síðastliðinn miðvikudag var haldið glæsilegt golfmót þar sem 57 tóku þátt og 65 manns voru í matnum. Keppt var á frábærum velli í Grindavík. Veðurguðirnir fóru ekkert of vel með okkur, hægviðri fyrstu tvo tímana en svo fór að blása hressilega og rigningin kom alveg í restina. Vel var veitt að venju, súkkulaði og snúðar og fl. Í fljótandi formi í teiggjöf, og ljósmyndarinn keyrði svo um með fljótandi næringu, nammi og aðra drykki.
Guðbjartur Ísak Ásgeirsson lék manna best á 40 punktum og var því krýndur kampakátur SÍGÍ meistari 2026. Í öðru sæti var Sigurður Þorgeirsson með 39 punkta og í þriðja sæti var Einar Gestur Jónasson á 36 punktum.

Eftirtalin fyrirtæki styrktu mótið af myndarskap með ýmsum gjöfum og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir, án þeirra er alveg ljóst að mótið væri ekki eins glæsilegt og raun ber vitni.
Altis, Básar, Epli, FLUX-vökvun, Grasavinafélagið, GSÍ, H verslun, ÍSAM, Icelandair, Kjöthúsið, KSÍ, Laugar Spa, Mekka, MHG, Nói Síríus, Ormson, Tandur, Vodafone og HÁ- verslun sem gaf öll nándarverðlaun og bauð öllum í matinn að eftir golfið.
Auk þess gáfu eftirfarandi golfklúbbar fríspil í verðlaun:
Flúðir, GA, GKG, GR, GM, GN, Keilir, Leynir og ODDUR.
Meistaramót SÍGÍ
Verðlaun hlutu eftirtaldir en leiknar voru 18 holur:
Næst holu á 5. br. Hlín Hlöðversdóttir 2,5 m
Næst holu á 7. br. Gunn Marit Hals Apeland 2,95 m
Næst holu á 14. br. Sveinn Steindórsson 98 cm
Næst holu á 18. br. Ólafur Dór Steindórsson 3,11 m
Lengsta dræf á 11. br. Bragi Friðrik Bjarnason
Besta skor: Marinó Rafn Pálsson á 75 höggum.
3.sæti með forgjöf Einar Gestur Jónasson á 36 punktum.
2.sæti með forgjöf Sigurður Þorgeirsson á 39 punktum.
1.sæti með forgjöf Guðbjartur Ísak Ásgeirsson á 40 punktum og “SÍGÍ meistari”.
Helga Dan Steinssyni framkvæmdastjóra og vallarstjóra voru færðar þakklætisgjafir fyrir höfðinglegar móttökur og lán á frábærum velli og vallarstarfsmönnum einnig þakkað þeirra hlutverk
Keppnisgjald var kr. 7.900. Umsjónarmaður mótsins var Jóhann G. Kristinsson og var mótið skráð í Golfbox.
Í 1. sæti með forgjöf er farandbikar SÍGÍ og síðan gjafir frá fyrirtækjum í öll önnur verðlaun.
Myndir frá mótinu koma svo á myndasíðunni okkar http://sigi.123.is