FEGGA ráðstefna 2026 var haldin í Faro Portúgal dagana 10.-13.mars síðastliðinn. Þar voru fulltrúar SÍGÍ þeir Steindór Kr. Ragnarsson formaður SÍGÍ og Einar Gestur Jónasson stjórnarmaður SÍGÍ ásamt Hauki Jónssyni en Haukur er einnig stjórnarmaður í SÍGÍ ásamt því að sitja í stjórn FEGGA.

 

Í ár var svokallað International Summit en þá er þjóðum utan Evrópu boðið að taka þátt í ráðstefnunni og var mettþáttaka í ár.

 

11. mars – Harradine dagurinn og alþjóðlegt samstarf

Dagurinn hófst á erindi Peter Harradine, sem fjallaði um sögu Don Harradine og það sem Harradine Golf stendur fyrir. Sérstök áhersla er lögð á að hanna golfvelli „fyrir vallarstjóra“ – vellina á að vera auðvelt að viðhalda, með rekstrarhæfni og einföldum lausnum í forgrunni.

Í kjölfarið komu kynningar frá nokkrum lykilaðilum:

  • ICL kynnti þróun í áburðarmálum og aukna áherslu á markvissa næringu.
  • DLF fjallaði um nýjustu þróun í grasyrkjum og val á yrkjum sem krefjast minni inntaks.
  • Foley sýndi fram á mikilvægi beittra og rétt stilltra sláttukefla fyrir gæði, jafna skurðhæð og minni slitkostnað.
  • Syngenta fór yfir Dollar Spot og lagði áherslu á veðurfars- og staðháttamiðaða vöktun til að draga úr notkun varnarefna.
  • Toro og Husqvarna tóku þátt í Harradine deginum. Þeir voru með fræðslu og demo á tækjum frá sér.

 

Í International meeting var rætt um menntun og faglega þróun vallarstjóra:

  • BIGGA kynnti breytingar á sínu menntakerfi, þar sem sérstök áhersla verður á stjórnendahæfni. Bent var á að margir hæfir vallarstarfsmenn taki við stjórn án þess að hafa fengið formlega stjórnunarþjálfun.
  • Rett Evans ræddi þróun Thank a Greenkeeper Day, sem stækkar ár frá ári. Næsti viðburður verður 8. september 2026.
  • Einnig var rætt um leiðir til að styrkja ímynd og virðingu vallarstjóra, m.a. með viðurkenningum á borð við Greenkeeper of the Year og Young Greenkeeper of the Year, og mögulegum verðlaunum innan FEGGA.
  • Okkur var boðið að kynna hugmyndir okkar um menntun vallarstarfsmanna, en við ákváðum að fresta því þar sem áætlunin okkar er ekki tilbúin.
  • Að lokum kynnti R&A Game Changer spilið, sem hjálpar stjórnum og nefndum golfklúbba að meta stöðu sína í sjálfbærni. Spilið gæti reynst gagnlegt verkfæri sem áhugavert væri að vinna áfram með innan GSÍ.

12. mars – Styrktaraðilar FEGGA, norrænt samstarf og sjálfbærni

Á morgninum var haldið svokallað Speed Date, þar sem styrktaraðilar FEGGA hittu fulltrúa landssambanda. Margir þeirra nýttu tækifærið til að átta sig betur á íslenskum markaði og hvernig þeir gætu aukið þjónustu eða samvinnu hér á landi.

Norrænn fundur – Menntun á háskólastigi

Í norræna fundinum, sem haldinn var yfir hádegishlé, voru fulltrúar allra Norðurlanda mættir. Áherslan var á menntun á háskólastigi, byggða á hugmynd Bjarna Hannessonar.
Niðurstaða fundarins var sú að Bjarni útbýr formlegt erindi til Sænska golfsambandsins. Öll Norðurlönd og FEGGA munu skrifa undir erindið. Sænska sambandið er stærsta hindrunin í að verkefnið geti orðið að veruleika, og mikilvægt er að fá það með í samstarfið.

Sjálfbærni – nýjustu verkefni og áskoranir

  • Maria Strandberg (STERF) fór yfir starfsemi STERF og þau rannsóknar- og þróunarverkefni sem nú eru í gangi innan stofnunarinnar.
  • Alexander de Vries (Hollenska GS) fjallaði um hollenska sjálfbærnissáttmálann. Í Hollandi er mikil pressa á golfiðnaðinn, meðal annars vegna slæmrar ímyndar og aukins þrýstings á að nýta golfvelli undir byggingarland. Markmið þeirra eru meðal annars að draga úr vatnsnotkun um 30% fyrir 2030 og minnka notkun varnarefna niður í 0 fyrir árið 2032.
  • Í framhaldinu var einnig rætt um þörfina fyrir frekari rannsóknir og hvort tilefni væri til stærra evrópsks samstarfs, svokallaðs STERF Europe.
  • Paul Woodham (R&A) fjallaði um „vísindi og list“ þess að reka sjálfbæran golfvöll.
  • Petra Himmel (Golf Sustainable) lagði áherslu á að samtökin þurfi að vera virkari í miðlun efnis til kylfinga, m.a. með reglulegu fréttabréfi 3–4 sinnum á ári.

FEGGA Scholarship Program

Að lokum kynnti Elin Foyle reynslu sína af FEGGA Scholarship Program hjá Kristianstad í Svíþjóð. FEGGA vinnur nú að því að stækka prógrammið og er nú unnið að því að bæta við vetrarprógrammi á Kýpur.

13. mars – Vinnustofa um vatnsnotkun

Síðasti dagurinn var helgaður vinnustofu sem Jonathan Smith (EGA) stýrði og fjallaði um vatnsnotkun á golfvöllum. Vatnsnotkun er stór hluti rekstrar golfvalla og mikilvægt er að hafa skýra heildarmynd af því hvernig vatnið er notað, hvaðan það kemur, hvernig það dreifist og hvaða leiðir eru bestar til að hámarka nýtingu.