Meistaramót SÍGÍ 2025 var haldið þann 3.september síðastliðinn, mótið var hið glæsilegasta en alls tóku 61 þátt í einmuna blíðu á Hvaleyrinni. Keppt var eins og segir á frábærum velli Keilismanna í Hafnafirðinum í stórkostlegu veðri. Vel var veitt að venju, Jói okkar skutlaði kræsingum á keppendur og myndaði í bak og fyrir. Eftir mót var svo verðlaunaafhending og matur, 67 mættu í matinn. HÁ Verslun bauð í matinn og færum við þeim bestu þakkir.
Pétur Leó Hrannarsson lék manna best á 41 punkti og er SÍGÍ Meistari 2025. Í öðru sæti var Óli Þór Júlíusson með 40 punkta og í þriðja sæti var Svavar Geir Svavarsson á 38 punktum. Óskum við þeim til lukku með flotta spilamennsku.
Eftirtalin fyrirtæki styrktu mótið af myndarskap með ýmsum gjöfum og er þeim færðar bestu þakkir fyrir, en án þeirra væri erfitt að gera mótið eins glæsilegt eins og raun ber vitni.
HÁ Verslun, Altis, Básar, Epli, FLUX- vökvun, Golfskálinn, Grasavinafélagið, Grastec, GSÍ, Íslansk Ameríska,Kjöthúsið, KSÍ, Laugar Spa, Mekka, MHG, Nói Síríus, Ormson, ÍSAM, Tandur og Vodafone.
Auk þess gáfu eftirfarandi golfklúbbar fríspil í verðlaun: Flúðir, Brautarholt, GA, GKG, GR, GM, GN, Keilir, Leynir og ODDUR.
Hauki Jónssyni vallarstjóra voru færðar þakklætisgjafir fyrir höfðinglegar móttökur og lán á frábærum velli og vallarstarfsmönnum einnig þakkað þeirra hlutverk.
Hægt er svo að nálgast glæsilegar myndir af mótinu á : http://www.sigi.123.is
Úrslit:
Meistaramót SÍGÍ
Verðlaun hlutu eftirtaldir en leiknar voru 18 holur:
Næst holu á 4. br. Einar Már Hjartarson 3,66m
Næst holu á 6. br. Daniel Halldórsson Apeland 2,67m
Næst holu á 12. br. Finnbogi Magnússon 4,76m
Næst holu á 17. br. Einar Már Hjartarson 2,27m
Lengsta dræf á 8. br. Símon Leví Héðinsson
Besta skor: Sigurþór Jónson á 74 höggum.
3.sæti m/forgjöf – Svavar Geir Svavarsson 38 pkt
2.sæti m/fogjöf – Óli Þór Júlíusson 40 pkt
1.sæti m/forgjöf – Pétur Leó Hrannarsson 41 pkt SÍGÍ Meistari 2025