Laus til umsóknar er staða Vallarstjóra hjá Golfklúbbi Borgarness.

Um er að ræða 100% stöðugildi Vallarstjóra á 18 holu golfvelli í Borgarnesi.

Völlurinn þjónar tæplega 300 meðlimum klúbbsins auk gesta og hefur notið mikilla vinsælda
síðustu sumur.

Vallarstjóri sér um skipulagningu alls viðhalds og nýframkvæmda við golfvöllinn, ráðningu
sumarstarfsmanna, ber ábyrgð á viðhaldi véla, samskipti við stjórn ásamt öðrum tilfallandi
verkefnum er snúa að vellinum og umhverfi hans.

Hæfniskröfur:

• Sjálfstæði og metnaður í starfi

• Reynsla af sambærilegu starfi

• Menntun í viðhaldi golfvalla

• Almenn kunnátta í viðhaldi á vélum og tækjum

• Vinnuvélaréttindi

• Góð mannleg samskipti

• Reynsla af framkvæmdum og vélavinnu mjög æskileg

Um er að ræða spennandi starf í Borgarnesi, jákvætt vinnuumhverfi hjá golfklúbb með
sívaxandi umsvif og mörg spennandi tækifæri fyrir réttan aðila.

Umsóknir ásamt ferilskrá berist á netfangið gbgolf@gbgolf.is fyrir 15. Nóvember 2023